Í dag fór ég á skrifstofu forsætisráðherra Íslands, herra Davíðs Oddsonar. Þar átti ég fund með honum en hann bauð mér að koma vegna ummæla minna í táningablaðinu ABC nú um daginn. Þar átti ég að hafa sagt að skattur á borðtennis-spaða væri alltof of hár en ég man ekki ekki að hafa sagt þetta þar sem ég var nýkomin af gjörgæsludeild Landspítalans og var dálítið upptjúnaður á Meskalíni sem einhver hjúkka lét mig fá. En það er önnur saga. Ég baðst afsökunnar á þessum ummælum mínum og hugsaði um leið, hvað veit ég um borðtennisspaða?
Það er ekki tveir, ekki þrír heldur ein manneskja búinn að skrá sig á póstlistan minn og ég mæli með að fleiri skrái sig.
í gærkvöldi fór ég með vinnufélögum vinar míns út að borða á veitingastað.
Í gær fór ég í félagsheimili KFUM í Safamýrinni. Þar ætlaði ég að tala um Guð og Jesús við félaga mína en allt kom fyrir ekki. Enginn mætti og ég stóð þar einn ásamt ræstingakonunni Valbjörgu Gústafsdóttur. Þar sem ég hafði ekki mikið gera ákvað ég að spila borðtennis við sjálfan mig og gerði það í 50 mínútur. Eftir það fór ég með bænirnar mínar.
Mér langar að deila með ykkur kæru lesendum mynd sem tekin var af mér og Guðbjörgu samstarfskonu minni. Við vorum bæði að byrja á McDonalds og þessi mynd var tekin þegar var verið að sverja okkur inn sem starfsmenn næstu 10 árin. Og ég vona að okkur gangi vel að hita forsteiktu hamborgarana í örbylgjunni.
ÆÆ. Gleymdi óvart að skella upp plakatinu en hér er það. Ég og Shubhendra verðum á Monaco Casino Bar (á móti Landsbankanum) alla helgina í maraþon-indverski-stemmningu alla helgina ásamt Tanmoy Bose. Við vonum að sjá sem flesta.... Bless í bili. P.S. Glas af fimmtíuköllum fylgir við innganginn til að fók geti farið í spilakassana. Allur ágóði úr kössunum fer til Shubhendra, þar sem hann er að spila hér frítt. (Tanmoy skaffar fimmtíukalla)
Úfff. Ég er búinn að standa í ströngu. Ég er nýkomin af árlegri samkomu Hjálparsveita Skáta í
Jæja. Þá er maður enn og aftur sestur fyrir framan tölvuna. Ég er bara nýstigin inn um dyrnar. Ég var að koma af góðgerðarsamkomu í Smáralind. Þar sem Smáralind er eins árs ákvað ég og dansflokkurinn minn að halda danssýningu til styrktar Snickers-hrjáðum börnum. Þeir sem ekki vita þá heitir dansflokkurinn "Geiri and the Girls". Gott nafn.
Fór í gærkveldi í samkomuhús "Andsettra fráskilinna manna". Það var stuð þar. Ég hitti gamalt andlit þar.....
Það var massa fjör hjá mér í hádeginu í dag. Ég fór með nokkrum félögum mínum niður í Mjódd þar sem við stóðum fyrir utan Nettó og sýndum listir okkar á leikfangið sívinsæla Jójó. Það gekk alveg rosalega vel. Haffi (efri röð lengst til vinstri) fór reyndar úr axlarlið þegar hann reyndi að gera tvöfalda vöggu. Við vöktum þvílíka lukku að við vorum boðaðir fyrir utan Ikea á fimmtudaginn af þekktum ljósmyndara úr Grafarvogi. Hann tók þessa mynd af okkur þegar við vorum að bíða eftir strætó. Þess má geta að vinir mínir eru 14 árum yngri en ég.
Ég vaknaði eldsnemma á sunnudagsmorgun og lagði leið mína í Norræna húsið þar sem ætlaði að fara skoða listaverk finnska myndhöggvarans Seppo Malkki en allt kom fyrir ekki. Það var talning í mötuneytinu. Þannig að ég ákvað að skoða byggingarnar á Háskólaloðinni. Þar hitti ég áttavilltan Rússa sem bar nafnið Gorblox (ég kallaði hann Steve). Þar sem ég tala rússnensku spurði ég hverju hann væri að leita að og hann kvaðst vera leita sér að matarbita en hann hafði farið í Norræna húsið og lent í því sama og ég. Nú voru góð ráð dýr. Ég sagði honum að koma með mér á rannsóknarstofuna mína. Þar sýndi ég honum ákveðna speglatækni sem ég hef verið að þróa. Hún virkar þannig að maður tekur lítið stækkunargler og lætur það við spegil og kíkir. Áhrifin er þau að maður verður saddur. Steve varð mjög ánægður og bauð mér að koma með sér í Háskólabíó að horfa á einhverja skemmtilega gamanmynd en ég komst því miður ekki því það var orðið dimmt úti.
Jæja. Þá er maður komin heim eftir vel heppnað skátamót í Indjánagili. Mótið byrjaði snemma í morgun þar sem við Gunnar (til hægri) og Gunnar (til vinstri) byrjuðum daginn á því að skella okkur í Breiðholtslaugina og baða okkur. Kíktum síðan á Staldrið og fengum okkur hamborgara í morgunmat. Síðan lá leiðin í Indjánagil. Þar beið Hugrún Ríkharðsdóttir eftir okkur, eini kvenmeðlimur Breiðholtsskáta og einnig gjaldkeri félagsins. Hún bauð okkur upp á kaffi og með því og síðan lá leiðin niður að elliðaá. Við reyndum að veiða lax en það gekk ekki. Við kvöddumst 8 leytið og hún Hugrún var svo myndarleg að taka þessa mynd af okkur sem sést hér til vinstri... Ástæðan fyrir því að ég var í pilsi er sú að búningurinn minn eyðilagist á seinasta móti í móunum milli neðra og efra Breiðholts og hún Hugrún var góð að lána mér búningin sinn fyrir myndatökuna en sjáiði hvað ég er með fallega fótleggi.
Í gærkvöldi fór ég út að borða á McDonalds og fékk mér Big Mac og franskar. Þar hitti ég starfsmann sem er af erlendum uppruna sem kallaði sig Steve. Hann kom víst hingað til lands í Júní og ætlaði að fá sér vinnu á Keflavíkurflugvelli við það að standa í flugstöðinni og vinka öllum farþegum sem koma til landsins í gegnum glerið en það var búið að ráða í stöðuna. Steve er frá Zimbabve og honum hefur alltaf langað til að kasta snjóbolta og ég gerði mér lítið fyrir og tók alla klakana úr ísvélinni og muldi þá niður þar til að snjór kom og ég hnoðaði bolta og ég afhenti honum boltan við hátíðlega athöfn á McDonalds seinna um kvöldið. Hann kastaði honum í lítið barn og var rekinn samstundins. Myndin hér til vinstri var tekin við það tækifæri.
Það var massa fjör hjá mér í gær. Fór í Félagsheimili Nýbúa og stjórnaði þar hópsöng á Víetnömsku. Hópurinn kallar sig Krímofsomjunggæ og er alveg hreint frábær. Næstu tónleikar hópsins verður í Bústaðakrikju á mánudaginn eftir viku. Ekki láta þig vanta...
Allt fór í rúst og nú þarf ég að byrja upp á nýtt. ÉG þurfti endilega að fikta eitthvað í þessu drasli. Andskotin.... Þessi mynd hér til vinstri var tekin við það tækifæri.... Djöfullin