Úfff. Ég er búinn að standa í ströngu. Ég er nýkomin af árlegri samkomu Hjálparsveita Skáta í Austurríki og ég verð að segja úff. Ég lenti í Austurríki þann 11. október og ég verð að segja frá þvi að mér er illt í upphandlegsvövðunum.Ég þurfti að halda á dverg allan tíman sem ég var þarna. Dvergurinn sem ég hélt á allan tíman heitir Pedro en hann á við vandamál að stríða sem kallast freidófloor syndrom. Þessi sjúkdómur eða kvili lýsir sér þannig að þú ert skyldugur til að halda sem mestri fjarlægð frá gólfi. Hann leggst aðeins á Dverga eins og Pedro. En þar sem ég er nú í Hjálparsveitinni bauðst ég til þess að halda á honum meðan hann væri innandyra en allt kom fyrir ekki. Greyið hann Pedro fékk 49 stiga hita og þurfti að vera inni allan tíman. Þannig að ég hélt á honum þar til hitin fór.... En nú er nóg komið af þessari leiðinlegu sögu.
Ég er að fara spila um helgina á Monaco Casino Bar á Laugavegi (á móti Landsbankanum) með Indverska vini mínum Shubhendar. Set upp auglýsingu hér á síðunni strax á morgun.....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli