miðvikudagur, október 09, 2002

Fór í gærkveldi í samkomuhús "Andsettra fráskilinna manna". Það var stuð þar. Ég hitti gamalt andlit þar.....
Einnig hitti ég gamlan leikskólakennara sem tjáði mér að hann hafði aldrei spilað á gítar og hann væri ólmur í að læra eitthvað nýtt. Ég kvaðst ekki kunna á gítar en ég gæti sýnt honum nokkur grip á lúftgítar. Hann hoppaði af kæti og sýndi honum nokkur grip og örfáa takta. Þessi maður, sem er félagsmaður númer 3, ætlar að halda skemmtikvöld á föstudaginn í samkomuhúsinu og ég kvet alla til að mæta sem eru andsettnir og fráskildir... ATH. Bolirnir kosta 1289 kr. en hægt er að láta draga þá upphæð af félagsgjaldinu. Samkomuhúsið er staðsett á karlasalerninu í Kolaportinu. Myndin hér til vinstri var tekin þegar kennslunni var lokið.....

Engin ummæli: