Jæja. Þá er maður enn og aftur sestur fyrir framan tölvuna. Ég er bara nýstigin inn um dyrnar. Ég var að koma af góðgerðarsamkomu í Smáralind. Þar sem Smáralind er eins árs ákvað ég og dansflokkurinn minn að halda danssýningu til styrktar Snickers-hrjáðum börnum. Þeir sem ekki vita þá heitir dansflokkurinn "Geiri and the Girls". Gott nafn.En við dönsuðum rassinn af okkur bókstaflega og fengum varla tíkall í kassann. Ég held að við höfum dansað í þrjú korter nonnstopp. En við dönsuðum að sjálfsögðu fyrir börnin sem þjást af Snickers sjúkdómnum. Þið sem eruð svo fáfróð að vita ekki hvað Snickers sjúkdómur er þá leggst hann aðallega á rauðhærð börn sem finnst súkkulaði með hnetum gott.... Myndin hér til vinstri var tekin í Vetrargarðinum rétt fyrir sýningu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli