fimmtudagur, nóvember 14, 2002

Í gær fór ég í félagsheimili KFUM í Safamýrinni. Þar ætlaði ég að tala um Guð og Jesús við félaga mína en allt kom fyrir ekki. Enginn mætti og ég stóð þar einn ásamt ræstingakonunni Valbjörgu Gústafsdóttur. Þar sem ég hafði ekki mikið gera ákvað ég að spila borðtennis við sjálfan mig og gerði það í 50 mínútur. Eftir það fór ég með bænirnar mínar.
Ekki var mikið að gera hjá Valbjörgu þannig að hún bauðst til að baða mig. Ég þáði það með þökkum og ég skellti mér í baðkarið. Hún skrúbbaði mig hátt og lágt. Myndin hér til vinstri var tekin þetta tækifæri. (Ath. Myndavélin var sett á tæmer.)

Engin ummæli: