í gærkvöldi fór ég með vinnufélögum vinar míns út að borða á veitingastað.Þar kynntist ég fullt af fólki sem hafði ýmsar sögur að segja. Eins og konan við hliðina á mér á myndinni heitir Borghildur og hún sagði mér að hún væri nýskilin við manninn sinn og hún væri að leita sér að félagsskap í nokkra daga. Ég sagði henni að ég væri ekki fyrir svona ungar konur eins og hana og benti henni á að vinur minn Raphaelo (myndarlegi indverjinn á myndinni) væri einmanna og hann væri alltaf að leita sér að félagsskap. Hún fór að tala við hann og það tókst með þeim félagsskapur. En síðan spurði Raphaelo Borghildi hvort hún hefði áhuga á að skrifa upp á lán fyrir hann þar sem hann er að fara kaupa sér Harley Davidson mótórhjól. Hún hrækti framan í hann og kom aftur til mín. Myndin hér til vinstri sýnir að Raphaelo er ennþá að reyna að fá fólk til að skrifa upp á lánið.
Ég vill minna á póstlistan minn þar sem hægt er að fá sent til sín myndir og fleira sem koma ekki til með að sjást hér á síðunni. ..........:::::::::::: asgeirsig@talnet.is ::::::::::::::................
Engin ummæli:
Skrifa ummæli