föstudagur, október 04, 2002

Jæja. Þá er maður komin heim eftir vel heppnað skátamót í Indjánagili. Mótið byrjaði snemma í morgun þar sem við Gunnar (til hægri) og Gunnar (til vinstri) byrjuðum daginn á því að skella okkur í Breiðholtslaugina og baða okkur. Kíktum síðan á Staldrið og fengum okkur hamborgara í morgunmat. Síðan lá leiðin í Indjánagil. Þar beið Hugrún Ríkharðsdóttir eftir okkur, eini kvenmeðlimur Breiðholtsskáta og einnig gjaldkeri félagsins. Hún bauð okkur upp á kaffi og með því og síðan lá leiðin niður að elliðaá. Við reyndum að veiða lax en það gekk ekki. Við kvöddumst 8 leytið og hún Hugrún var svo myndarleg að taka þessa mynd af okkur sem sést hér til vinstri... Ástæðan fyrir því að ég var í pilsi er sú að búningurinn minn eyðilagist á seinasta móti í móunum milli neðra og efra Breiðholts og hún Hugrún var góð að lána mér búningin sinn fyrir myndatökuna en sjáiði hvað ég er með fallega fótleggi.
Í gærkvöldi fór ég út að borða á McDonalds og fékk mér Big Mac og franskar. Þar hitti ég starfsmann sem er af erlendum uppruna sem kallaði sig Steve. Hann kom víst hingað til lands í Júní og ætlaði að fá sér vinnu á Keflavíkurflugvelli við það að standa í flugstöðinni og vinka öllum farþegum sem koma til landsins í gegnum glerið en það var búið að ráða í stöðuna. Steve er frá Zimbabve og honum hefur alltaf langað til að kasta snjóbolta og ég gerði mér lítið fyrir og tók alla klakana úr ísvélinni og muldi þá niður þar til að snjór kom og ég hnoðaði bolta og ég afhenti honum boltan við hátíðlega athöfn á McDonalds seinna um kvöldið. Hann kastaði honum í lítið barn og var rekinn samstundins. Myndin hér til vinstri var tekin við það tækifæri.

fimmtudagur, október 03, 2002

Það var massa fjör hjá mér í gær. Fór í Félagsheimili Nýbúa og stjórnaði þar hópsöng á Víetnömsku. Hópurinn kallar sig Krímofsomjunggæ og er alveg hreint frábær. Næstu tónleikar hópsins verður í Bústaðakrikju á mánudaginn eftir viku. Ekki láta þig vanta...

miðvikudagur, október 02, 2002

Jæja þetta virðist ætla að taka minni tíma að laga þetta en ég hélt...
Allt fór í rúst og nú þarf ég að byrja upp á nýtt. ÉG þurfti endilega að fikta eitthvað í þessu drasli. Andskotin.... Þessi mynd hér til vinstri var tekin við það tækifæri.... Djöfullin