laugardagur, nóvember 16, 2002

í gærkvöldi fór ég með vinnufélögum vinar míns út að borða á veitingastað.
Þar kynntist ég fullt af fólki sem hafði ýmsar sögur að segja. Eins og konan við hliðina á mér á myndinni heitir Borghildur og hún sagði mér að hún væri nýskilin við manninn sinn og hún væri að leita sér að félagsskap í nokkra daga. Ég sagði henni að ég væri ekki fyrir svona ungar konur eins og hana og benti henni á að vinur minn Raphaelo (myndarlegi indverjinn á myndinni) væri einmanna og hann væri alltaf að leita sér að félagsskap. Hún fór að tala við hann og það tókst með þeim félagsskapur. En síðan spurði Raphaelo Borghildi hvort hún hefði áhuga á að skrifa upp á lán fyrir hann þar sem hann er að fara kaupa sér Harley Davidson mótórhjól. Hún hrækti framan í hann og kom aftur til mín. Myndin hér til vinstri sýnir að Raphaelo er ennþá að reyna að fá fólk til að skrifa upp á lánið.

Ég vill minna á póstlistan minn þar sem hægt er að fá sent til sín myndir og fleira sem koma ekki til með að sjást hér á síðunni. ..........:::::::::::: asgeirsig@talnet.is ::::::::::::::................

fimmtudagur, nóvember 14, 2002

Í gær fór ég í félagsheimili KFUM í Safamýrinni. Þar ætlaði ég að tala um Guð og Jesús við félaga mína en allt kom fyrir ekki. Enginn mætti og ég stóð þar einn ásamt ræstingakonunni Valbjörgu Gústafsdóttur. Þar sem ég hafði ekki mikið gera ákvað ég að spila borðtennis við sjálfan mig og gerði það í 50 mínútur. Eftir það fór ég með bænirnar mínar.
Ekki var mikið að gera hjá Valbjörgu þannig að hún bauðst til að baða mig. Ég þáði það með þökkum og ég skellti mér í baðkarið. Hún skrúbbaði mig hátt og lágt. Myndin hér til vinstri var tekin þetta tækifæri. (Ath. Myndavélin var sett á tæmer.)

mánudagur, nóvember 11, 2002

Mér langar að deila með ykkur kæru lesendum mynd sem tekin var af mér og Guðbjörgu samstarfskonu minni. Við vorum bæði að byrja á McDonalds og þessi mynd var tekin þegar var verið að sverja okkur inn sem starfsmenn næstu 10 árin. Og ég vona að okkur gangi vel að hita forsteiktu hamborgarana í örbylgjunni.

Ég hef tekið eftir því að enginn er búinn að skrá sig á póstlistann minn. Ég er ekki ánægður með það.