Skák og mát. Já það má með sanni segja.Eins og flestir landsmenn ættu að hafa tekið eftir er mikið skák-æði búið að ganga yfir landið. Ótrúlegt en satt! Vúhú!
Að sjálfsögðu tek ég þátt í því eins og öllum öðrum mótum (tók seinast þátt í Kárahnjúka-mótinu).
Nú! Ég og félagar mínir úr Rimahverfinu tókum þá ákvörðun að stofna skáklið. Við tókum þátt í móti sem haldið var í Hvassaleitisskóla og rústuðum því. Myndin hér til vinstri er af mér, Vidda og Hannesi að taka við verðlaununum...en Viddi man hverja einustu skák sem hann hefur teflt og er alltaf að læra eitthvað nýtt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli