Ég er nýkominn af magnaðri sýningu sem var á Árbæjarsafni í dag. Dvalarheimili aldraða sjómanna (eða DAS) stóð fyrir þessari sýningu. Ég var sjálfboðaliði þarna og fékk það frábæra hlutverk að vera sýningarmódel hjá reiðhjóli frá árinu 1877. Heill hellingur af eldri borgurum mættu á sýninguna og meðal þeirra sem gengu framhjá mér voru Flosi Ólafsson, rauðhærði gaurinn í Kastljósinu og Afi á Stöð 2. Einnig kastaði femínistinn Bríet á mig kveðju.
Ég kvet alla að fara á þessa sýningu, hún er vægast sagt frábær.
Hér myndin sem ég lofaði af mér og Magna Stuðara.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli