Nú í dag byrjuðu börn og táningar að flykkjast í skólana.Ég stofnaði fyrirtækið Ferðadjús í morgun og náði samningum við Svala um að færa grunnskólabörnum Svala þegar þau vilja. Eins og sést á myndinni hér til vinstri hannaði ég tæki sem framleiðir ískaldan djús. Nú þurfa börnin ekki lengur að bíða eftir frímínútum til að fá Svala heldur getað þau bípað í mig hvenær sem er. Símboðanúmerið mitt er 907-DJÚS.
Ég hef heyrt að börn kvarta undan eymslum í baki vegna bakpokana þeirra en ég dey ekki ráðalaus og hef ákveðið að hanna bakpoka sem börnin geta verið framan á sér. Það er náttúrulega miklu betra, þá þurfa þau aldrei að taka töskuna af sér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli