"Á skíðum skemmti ég mér, tralalaltalralala." Jú mikið rétt eins og segir í laginu þá skemmti ég mér á skíðum. Ég fór með tveimur vinkonum mínum af Grund í Skíðaferð í brekkuna upp í Breiðholti og við erum búinn renna okkur í allan dag. Þær Guðný og Sigríður hafa ekki farið á skíði í 62 ár en þær eru fyrrum íslandsmeistarar og heimsmethafar á skíðum. Þær hringdu í mig í morgun og voru rosalega æstar að fá mig á skíði en sagði nú við þær að þær væru snargeggjaðar stelpur. Það er enginn snjór kominn, en viti menn það byrjaði að snjóa í sveitinni Breiðholt í nótt. Ég týndi stelpunum um mitt hádegi og ég hef ekki séð þær síðan. En ég sá sjúkrafluttningamenn bera svarta poka í bíl. Magnað!Hér á myndinni er ég ásamt Guðnýju og Sigríði við sólarupprás í Breiðholtinu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli