Hahahahaha. Nei nei nei. Ég hef hvorki verið veikur né á ferðalagi með frægum vin en þó vil ég geta þess að ég er að fara til Blönduós með Þorsteini Joð um næstu helgi til að hjálpa honum að koma á fót spurningakeppni í félagsheimilinu þar. Meira um það síðar.Ástæðan fyrir því að ég hef ekki skrifað til ykkar lesendur góðir er sú að ég var fengin til að vera umsjónarmaður rannsóknarverkefnis sem á að ljóstra því upp afhverju söngleikir eins og Grease t.d. eru svona vinsælir hér á Íslandi. Ég hef verið fastur í þessu verkefni dag og nótt. Það er finnska menntamálaráðuneytið sem vil endilega komast að þessu. Ég komst að niðurstöðu í gær og niðurstaðan er sú að Finnland verður að opna bæði IKEA verslun og Kiss búð (eins og í kringlunni) til að söngleikir nýti einhverra hylli þar í landi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli