Ég fór eldsenmma á fætur í morgun og lagði leið mína í Þjóðarbókhlöðuna. Þar fór ég gegnum nokkrar skyggnur til að leita af viðtali við Albert Guðmundsson þar sem segist vera andvígur því börn fái púðursykur út á súrmjólkina sína. ENNNN.. allt í einu bankaði stúlka í öxlina á mér. Hún sagðist heita María Marteins og spurði hvort ég væri á lausu. Ég sagði svo vera og hún spurði mig hvort ég vildi byrja með henni. Ég sagði að ég væri ekki tilbúinn í ástarsamband en bætti við að hún mætti hringja í mig hvenær sem er. Hún bað um símanúmerið mitt og ég sagðist ekki muna það. Þannig að hún dró fram nýjustu símaskrána og bað mig um benda sér á númerið og ég gerði það. Einnig benti ég henni á númerið hjá Böðvars Bakarí og dekkjaverkstæði pabba hennar. Myndin hér til vinstri var tekin við það tæifæri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli