Hér er myndinni til vinstri er ég á ásamt félögum mínum í Manchster United áhugamannaklúbbi sem heitir 'RimaCentral'. Ég vildi bara sýna ykkur þessa mynd kæru lesendur því að hún er sönnunargagn. Þannig er mál með vexti að við félagarnir ákváðum að hafa hendurnar í vösum til að mótmæla flutningi David Beckhams til Real Madrid en Haffi sem er til vinstri aftast var bara eina hönd í vasanum. Haffi segir að hann hafi misst jafnvægið þegar myndin var tekinn og hafi þurft að styðja sig við hilluna en við erum ekki að trúa því, vegna þess að eitt sinn var Haffi harður stuðnigsmaður Derby County og var m.a. einn af stofnendum aðdáendaklúbbsins Derbý Debbý . Hann hefur verið rekinn tímabundið úr félaginu á meðan rannsókn stendur. (sjáið bara glottið á honum).
Engin ummæli:
Skrifa ummæli