Eins og myndin hér til vinstri sýnir er ég og starfsmaður minn, hann Gummi, að flytja vefinn. Vefurinn er væntanlegur á nýrri slóð innan skamms. Flutningar munu taka u.m.b. tvær vikur því benzínið á bílnum er að verða búið og því miður er budgetið okkar mjög lítið en við vonumst til að fá nokkrar krónur fyrir auglýsinguna sem er hér efst á síðunni til að kaupa meira benzín. Það er búið að banna okkur að vera á þessari slóð því íþróttafélagið Víkingur var búið að kaupa þessa slóð fyrir fimleikadeildina sína. En það þýðir ekkert að væla út af því.Reimarinn mun koma sterkari og skemmtilegri á nýrri slóð. Gummi lofar því.
Hér er ég ásamt vini mínum Óskari á svif-flugnámskeiði. Óskar fékk einhverja pöddu inn í eyrað og hann fraus eins og sést á myndinni. Ég reyndi að róa hann með Súperdós af Diet-kók en það virkaði ekkert. Þannig að ég setti hann í kraftgallan minn, fór með litla bæn sem KFUM kendi mér og opnaði eina Súperdós af vanilukók. En ekkert gekk. Hann situr þarna enn í skúrnum með þennan svip en ég fer aðra hverja helgi til hans með Súperdós af diet-kók. Það róar taugarnar.
Vildi bara deila þessari mögnuðu mynd með ykkur. Þvílík dramatík þarna í gangi... Andstæðingur minn í þessari skák, Gaui, gaf leikinn eftir að ég færði fyrsta peðið mitt. Ég fékk ekki einu sinni tækifæri til að fara úr úlpunni...
Skák og mát. Já það má með sanni segja.