Ég fékk frábæra símhringingu í morgun. Það var enginn annar en sýslumaðurinn á Raufarhöfn, hann Hermann Ívarsson. Hann vildi athuga hvort ég hefði áhuga að vinna örlitla sjálfboðavinnu núna um verslunnarmannahelgina. Ég stökk á tækifærið og tók næstu rútu til Raufarhafnar. Það er heilmikil samkoma hér á Raufarhöfn um helgina en gildir meðlimir í Nýbúa samtökunum og fjölskyldur þeirra verða með fjölskylduskemmtun í Ásbyrgi. Ég mun vera við talstöðina alla helgina og ef einhver vill tala við mig þá er lögreglurásin á rás 12. ATH. Vegna sumarleyfa 21. júlí til 12. ágúst verður opnunartími skrifstofu Raufarhafnarhrepps frá 9:00 - 14:00.
Jú, mikið rétt kæru lesendur ég hef fengið mér hund. Ég fann hann í Austurveri en hann átti leið þar framhjá í gær þegar ég var að leysa af í Manchester United og hesta-búðinni Ástund. Ég fór strax í morgun á ljósmyndastofuna "Ljósmynd af þér" í Grafarvogi og lét taka mynd af okkur saman. Hundurinn heitir Passion (eða Ástríða) og er algjör fjörbolti. En nóg um það. Eins og sést á myndinni er ég í nýjum skóm en þessa skó fann í sundi um daginn, lágu bara í hillu fyrir utan búningsklefan, og ég ákvað að taka þá. Þeir eru dálítið of stórir en það er allt í lagi því þeir eru svo töff. Þeir eiga eftir að koma að góðum notum helgina eftir verslunarmannahelgina en þá tek ég þátt í skylmingamóti en ég er virkur meðlimur í SKYR (Skylmingafélagi Reykjavíkur).
Við sólarupprás í morgun ákvað ég að skella mér í félagsheimili Nýbúa í Mjóddinni. Hún Guðný Saaiko var sú fyrsta á staðinn en hún þurfti að mæta snemma því að það þurfti að gera við sjónauka félagsins. Hún var búinn að laga hann þegar mér bar að garði og hún spurði hvort að vildi koma með henni í Nauthólsvíkina á línuskauta. Ég þáði gott boð en þurfti að sjálfsögðu að klára nýja heftið af Æskunni sem var að koma í hús. Frábær grein um Örn Arnarson sundkappa í nýja blaðinu en hann er eini maðurinn sem býr á bæjarmörkum Hafnarfjarðar og Grafavogs sem náð hefur árangri í sundi. Magnað.
Ég er alltaf að bæta við síðuna og stækka hana eftir að hafa fengið vænan styrk frá Menntamálaráðuneytinu. Jú, hann