Sumir lesendur síðunnar hafa verið að kvarta yfir því að það sé erfitt að skrá sig á póstlistann. Nú þegar hafa 5 manneskjur skráð sig. Þar á meðal hafa Hans og Dietmar frá Þýskalandi skráð sig og þeim fannst þetta ekkert erfitt. Það eina sem þarf að gera er að senda mér póst á asgeirsig@talnet.is og segja: "Mér ekki mig langar virkilega að komast á póstlistann og einnig vil ég þakka fyrir frábæra grein sem þú skrifaðir á heimasíðu aðdáendaklúbbs Ripp, Rapp og Rupp" og ýtið á send. Svo einfalt er það. Þess má geta að ég bauðst til að kenna Hans og Dietmar á listdans-skauta vegna þess að þeir skráðu sig. Myndin hér til vinstri var tekin við það tækifæri.
Ágætu lesendur. Ég veit að ég hef ekki látið vita af mér í heila viku en þannig er mál með vexti að ég stóð fyrir alþjóðlegri danskeppni nú á dögunum og ég hef verið hundeltur af aðdáendum hljómsveitarinnar En Vouge en sá hópur mátti ekki taka þátt í keppninni vegna þess að þær skulda Hörpu Skúla félagsgjöld en hún á og rekur Dans-stúdíó Hörpu. Þannig að ég hef þurft að fela mig hér á Flateyri þar sem keppninn var haldinn í félagsheimili Flateyringa. Ég vona að þær fari að gefast upp því mig langar rosalega að komast út því það er bingó í félagsheimilinu í kvöld og aðalvinningur er kuldagalli sem ekki hefur sést áður á landinu.