Nú rétt í þessu var íslenska pílusambandið að færa mér stigatöflu að gjöf.Pílusambandið ákvað færa mér þessa stigatöflu því ég er víst fyrsti maðurinn á Íslandi til að hitta öllum þrem pílunum í miðjuna á Dartspjaldinu með svertingja viðstaddann. Þetta hefur víst ekki gerst áður. Svarti maðurinn sem var viðstaddur þessa mögnuðu stund er enginn annar en körfuboltasnillingurinn og vinur minn Ívar Webster. Hér á myndinni til vinstri er Ívar að afhenda mér töfluna.
Allir í Dart!
Ég er búinn að vera á stanslausum æfingum alla vikuna fyrir menningarnótt en á laugardagskvöldið mun ég ásamt gjörningahópnum Klandur vera með gjörning á Hverfisgötu fyrir framan danska sendiráðið. Danski kónsúllinn gaf okkur leyfi til að vera fyrir framan sendiráðið en fyrir skemmstu lánaði ég honum í strætó þegar hann var fastur í Vogahverfinu.