Í morgun var ég staddur í Bandaríska sendiráðinu. Ástæðan fyrir minni heimsókn minni þangað var sú að ég prjónaði peysu á sendiherra Ameríkana, hana Carol Hamilton. Carol var hæst ánægð með peysuna en við yrðum miklir vinir eftir að hún hafði frétt af því að það var ég sem var fyrirliði íslenska Briddsliðsins en eins og allir lesendur mínir vita þá náði íslenska liðið að sigra Rússa á heimsmeistaramótinu í Bridds árið 1994. Það er liðin langur tími frá því að ég lagði leið mína í Ameríska sendiráðið en ég skaust þangað í morgun og gaf henni þessa fallegu peysu eins og sést á myndinni. (Því miður eru kanarnir ekki komnir svo langt að geta keypt litafilmu).
Eins og allir að vita þá er ég á forsíðu September útgáfu táningatímaritsins ABC.
Nú í dag byrjuðu börn og táningar að flykkjast í skólana.