Nú rétt í þessu var ég að koma frá Hvanneyri en ég var fenginn til að koma til að vera sérstakur ráðgjafi við gerð símaskráar bæjarfélagsins.Þeir Eddi og Jói eru smiðirnir að skránni en þeir vildu fá mitt álit. Að sjálfsögðu tók ég næstu rútu til Hvanneyrar til gefa þeim mitt álit á skránni en eins og allir vita þá er símaskrá Hvanneyrar ein skemmtilegasta bók sem kemur út á hverju ári. Ég benti Jóa og Edda á að þeir gætu leyft sér þann unað að hafa hana smærri í sniðum þetta árið en því miður er það ekki hægt því skurðarhnífur sem pantaður var frá Hannover árið 1973 er enn fastur í tollinum þar sem þetta telst víst vera vopn. Ég fór ekki ráðalaus og tók svissneksa vasahnífinn minn og skar þetta fyrir þá nema eina sem ég ætla að veggfóðra kjallaraherbergið mitt með.
Í morgun var ég dregin úr morgunkaffi á Litlu kaffistofunni og fenginn til að hlaupa í skarðið fyrir Jóhannes í Bónus en hann átti að vera dómari á alþjóðlegri hundasýningu sem haldin var fyrir framan Debenhams í Smáralind.
Hahahahaha. Nei nei nei. Ég hef hvorki verið veikur né á ferðalagi með frægum vin en þó vil ég geta þess að ég er að fara til Blönduós með Þorsteini Joð um næstu helgi til að hjálpa honum að koma á fót spurningakeppni í félagsheimilinu þar. Meira um það síðar.