laugardagur, desember 11, 2004

Gerður og hundurinn Skóda


Í gærmorgun fékk áhugavert símtal. Það var enginn önnur en Gerður Guðvalds á línunni, en eins og allir Íslendingar vita er hún starfsmaður hjá sænsku geimrannsóknarstöðunni SSC eða Swedish Space Corporation.
Ég fann á mér að þegar ég tók upp tólið að það væri allt eins og það sýndist. Gerður tjáði mér að hundurinn hennar Skóda var strokinn að heiman. Ég var ekki lengi að teygja mig í vegabréfið mitt og flaug beinustu leið til Svíþjóðar og ásamt leitarhópi. Við leituðum út allt af Skódu, hún var hvergi finnanleg. Eftir ekki svo árangursríkan dag, fengum við okkur snæðing heima hjá Gerði. Þegar ég var að ljúka við seinustu pönnukökuna fann ég að eitthvað blaut við fæturna mína, þá leit ég undir borðið og þar var Skóda, köld og svöng. Gerður var að sjálfsögðu himinlifandi og við ákváðum að gera þetta að árlegum viðburði.

föstudagur, desember 10, 2004

Eftir langar og strangar viðræður við kunningja minn úr Fossvoginum ákvað ég að fara á jólahlaðborð hjá íþróttafélaginu Víkingi. Ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að fara þar sem ég er nýbúinn að eiga í deilum við Guðmund borðtennis-stjörnu okkar Íslendinga. En hann Fróði kunningi minn sagði mér að hann myndi ekki vera á staðnum þannig að ég sló til.
Mér til mikillar furðu var búið að ákveða að ég ætti að vera veislustjóri hlaðborðins og það var búið að skrifa gamanmál sem undirritaður átti að fara með. Að sjálfsögðu var það ekkert mál. Ég fékk frítt að borða og dansaði síðan frameftir nóttu við ljúfa tóna sveitarinnar Equador en það er rafhljómsveit úr Réttarholtsskóla sem samanstendur af tveim hressum strákum úr 8. bekk.
Hér á myndinni til vinstri er ég ásamt Friðrik, umboðsmanni Dressman á Íslandi og stuðningsmaður Víkings númer 1. Bakvið mig sést í Fróða kunningja minn.

miðvikudagur, desember 08, 2004


Það eiga nú eflaust fáir eftir að trúa þessu en ég fór í fyrsta sinn í rúllukragabol í dag. Ég var í myndatöku fyrir nýja Nettó bæklingin sem kemur út fyrir jól og þar var mér réttur þessi fallegi bolur. Ég hef aldrei verið jafn hissa á ævi minni og fólkið á ljósmyndastofunni trúðu ekki að ég hafi aldrei klæðst rúllukragabol. Það var mikið húllumhæ á stofunni eftir þetta. Eins og sést hér myndinni til vinstri er bolurinn ekki aðalmálið heldur er það þessi fallega rauða úlpa frá Regatta. Þetta er jólagjöfin í ár hjá þeim í Nettó. Það er hægt að fá hana í parastærðum. Ath. bakgrunnurinnn er bara plat, ég var ekki í Austurríki en ég fékk að eiga bolinn. Takk Nettó í Mjódd.

Mig langaði bara rétt að láta vita af því að ég er komin með þráðlausan síma á skrifstofuna mína. Númerið er ennþá það sama.

Eftir mikla úrkomu síðastliðna daga ákvað ég að skella mér í heimsókn til vinar míns í Menntaskólanum við sund. Jú, mikið rétt eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir er þessi vinur minn enginn annar en Grétar Hafsteinsson betur þekktur sem Grét Haf.
Þegar mér bar að garði var hann að sýna nemendum sínum hve mörg hnetu M&M kæmust fyrir í olíutunnu. Þegar líða tók á daginn og ég búinn að fylla magan af hentu M&M kom ljós að það komast fleiri hnetu M&M í maganum á mér heldur en í olíutunnu. Grét Haf klikkaðist og rak mig á dyr en hann róaðist stuttu seinna og sagði mér að hann hafi reiknað jöfnuna vitlaust. M var hnetan ekki Y.

föstudagur, nóvember 12, 2004


Einn lesandi síðunnar sendi mér skeyti nú fyrir stuttu. Það hljóðaði svo...
Gerðu það STOP Láttu inn mynd af Johnny Carl á síðuna þína STOP Diggur lesandi STOP
Það er nú minnsta málið lesandi góður. Hér til vinstri er mynd af okkur að skála í kaffi og neftóbaki eftir velheppnaða æfingu hjá NATO. Annars er allt gott að frétta af Johnny. Hann skilar kveðju til allra fyrir vestan og vonar barnið í okkur öllum hafi það gott.

Það eru ekki margir sem vita þetta en það er nýtt æði sem er að gera allt brjálað í Þorlákshöfn. Þetta er eitthvað sem heitir FLUG og er alveg þrælsniðugt.
Þannig er mál með vexti að bóndi nokkur úr Árnessveit kom í kaupfélagið í bænum og þurfti eina niðursuðudós af sveppum en náði ekki í efstu hilluna þannig að hann notaði FLUGið sitt og sveif upp að efstu hillunni. Ef einhver hefur áhuga þá mun hún Gunnhildur Konráðsdóttir halda fyrirlestur þann 3. desember í KFUMogK húsinu við Bjarnartorg.

Flestir lesendur mínir ættu að vita að ég er ekki mikið fyrir að ferðast. Nú í byrjun nóvember var ég beðinn um að leiða mótorhjólaklúbbinn Spaða um götur Ísafjarðar til að fagna 2 ára afmæli þeirra. Eins og flestir vita er stofnandi klúbbsins, Öddi Spaði. Það hefur ekki sést til hans síðan að hann gerði sjálfan sig að athlægi í Kastljósinu í sumar þegar hann sagðist hafa búið til ÓlsenÓlsen spilið.
Í þessari merku ferð um Ísafjarðarbæ sáum við margt skemmtilegt og annað ekki svo skemmtilegt, til að mynda hefði ég alveg viljað sleppa við að sjá Báru Bleiku verka síld.

föstudagur, september 24, 2004

Á sunnudaginn fyrir viku var ég beðinn um að mæta í Grafarvoginn, nánar tiltekið í Spöngina Grafarvogi, af bæjarfulltrúa í Reykjavík. Ég kvaðst mæta án þess að spyrja nokkurra spurninga. Ég var mættur í Spöngina um kaffileytið og þá var mér tilynnt að ég mundi fá lykilinn af Grafarvogshverfi fyrir vel unnin störf í hverfisgæslunni. Ég varð nú svo aldeilis hissa, þar sem ég hef nú ekki unnið hingað til fyrir hverfisgæsluna.
Þá sagði bæjarfulltrúinn mér að ég hafði sagt unglingi að hætta drekka fyrir utan einhverja sjoppu í hverfinu. Ég stóð alveg hreinlega á gati.

Þegar mér var afhentur lykilinn ætlaði allt um koll að keyra. Maður sem sagðist heita Hjálmar Einarsson kom upp á svið og sagði að þetta væri allt saman rugl, að það hefði verið hann sem talaði við táninginn. Hann kvaðst hafa beðið barnið um sopa á brugginu hans en allt kom fyrir ekki þetta var bara venjulegt Fanta. Hann reyndi að hrifsa lykilinn af mér en ég hélt fastataki í hann. Hjálmar fór heim til þín lyklalaus en menn segja mér að hann sé mikið fyrir sopan.

Johhny Carl vill koma því skila að Skittles nammið er uppselt og þeir í Leifsstöð eiga von á nýrri sendingu von bráðar.

sunnudagur, september 12, 2004

Á mánudaginn fyrir viku var ég að hjálpa félögum mínum í Hjálpræðishernum að mála altarismynd í samkomusalnum þeirra þegar undarlegur maður labbar upp að mér og spyr mig hvað klukkan væri. Ég sagði honum hún væri að ganga þrjú. Hann kynnti sig sem Klaus og sagðist vera þýskur túristi en ég trúði því ekki eitt andartak. Hann sagði mér einhverja lygasögu um að hann væri rosalega hrifinn af Íslandi og að hann hafði orðið mjög áhugasamur um land og þjóð eftir að hafa séð Vigdísi Finnbogadóttur í spjallþætti á sjónvarpsstöðinni ProSieben. Ég sagði honum að það þýddi ekkert að ljúga að mér og þá hrökk hann í kút og kom með aðra lygasögu og enn eina eftir það. Ég sagði honum að ég væri orðinn frekar leiður á þessu fíflaskap og ákvað að labba með honum út í söluturnin Texas og kaupa handa honum Síríus lengju og kók gleri. Það fær menn alltaf til að vera síríus. Síðan töltuðum við út á Austurvöll og settumst þar undir tré og hann ákvað að segja mér sannleikan. Hann sagði mér að hann væri frá Hveragerði og hefði leiðst út í kynvillu og væri þess vegna núna í herbergi hjá Hjálpræðishernum. Þetta vissi ég allan tíman. Seisei.

Johnny Carl sagði mér nú fyrir stuttu að hann hafi verið að sjá um ræstingar í Leifstöð og fylltist viðbjóði. Vinsamlega gangið betur um en munið að skilja ekki eftir lausamuni og annað verðmæti eftirlitslaust.

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Á hverju ári fer ég fótgangandi hringinn í kringum landið til styrktar góðu fólki sem fer í þau stóru verkefni að setja upp söngleiki hér á Íslandi. Þegar ég var búinn að tölta yfir Þjórársbrúnna hitti ég engan annan en lögregluhundinn Rex. Ég kynnti mig og spurði hvað hann væri að gera hér á landinu góða, þá svaraði hann mér því að hann væri að hjálpa sýslumanninum þar í sveit vegna tíðra fíkniefnabrota á Selfossi og þar í grend. Hann hefur nú þegar náð að leysa þrjú mál frá að hann kom hingað til lands í janúar. Ég kvaddi hann eftir stutt en innihaldsríkt spjall og hélt minni göngu áfram. Þið sem viljið styrkja góða fólkið og söngleikina getið sent tölvupóst á netfangið einsibard@concert.is
Johnny Carl segir að allt sé að verða vitlaust upp á velli vegna hættuástands sem þar ríkir. Það var víst einhver sem pantaði Magaritu pitsu en gleymdi að sækja hana og það þarf að snúa Flugleiðavél við sem er komin hálfa leiðina til Minnesota. Henni er haldið heitri.

föstudagur, júlí 09, 2004


Um dagin var ég staddur í Þýskalandi að hjálpa gamalli frænku minni að gera við skrautbúninga sem henni áskotnaðist á uppboðsheimasíðu. Ég ákvað að skoða mig um í bænum sem ég var í og rak upp stór augu þegar ég sá auglýsingu með mynd af mér auglýsa Yamaha rafmagnspíanó. Ég var nú ekki mikið að pæla í þessu fyrr en þýskættaður japani kom til mín og bað mig um eiginhandaráritun. Ég sagði við hann Ich sind sie neukunde? Hier geht's los. Hann tók vel í það og við ákváðum að hittast seinna um daginn á ítölskum veitingastað í hverfinu. Sem og við gerðum. Við röbbuðum í dálitla stund um daginn og veginn en ég er enn að furða mig á því afhverju hann kallaði mig Thomas.
Johnny Carl segir að mikil umferð sé þessa stundina á vellinum og honum sýnist að flestir séu að fara eitthvert.

mánudagur, júlí 05, 2004


Jæja gott fólk, þá er sumarið loksins komið og ekki ber á öðru en að þetta sumar verði það besta síðan sumarið 1984 en eins flestir muna þá var mjög hlýtt í veðri og gróður landsins fékk að njóta sín.
Nú um helgina tók ég fram gamla reiðhjólið mitt sem Nonni frændi gaf mér í sumargjöf vorið 1991 og hjólaði á landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum. Ég er búinn að skemmta mér konunglega á mótinu og ég hitti marga kunningja sem ég hef ekki séð í herra háans tíð. En þó kom babb í bátinn því að ég varð vitni að svindli í gæðingakeppninni og því miður varð að fella niður allar aðrar keppnir vegna þessa. En öll aðstaða var sú langbesta til þessa, hið sama má segja um framkvæmd mótsins og hestakosturinn hreint frábær.

Johnny Carl skilar kveðju frá Vellinum og vildi koma því á framfæri að skilja ekki eftir handfarangur og önnur verðmæti eftirlitslaus í Leifstöð.
Góðar stundir

miðvikudagur, júní 02, 2004

Í þessum töluðum orðum var verið að afhenda mér þakkargerðarskjöld frá skákfélaginu Hrókurinn en eins og allir vita þá hélt Hrafni Jökulsyni vakandi í Vetrargarðinum nú um helgina þar sem tefldi nokkrar skákir í 30 klukkutíma.
Margir spyrja sig líklega afhverju þarf Hrafn á manni að halda til að halda sér vakandi? Það er einfalt svar við því. Hann Hrafn (eða Krummi Biskup eins og við félagarnir í Hróknum köllum hann) er nýhættur að drekka kaffi því bað hann mig um að sitja við hlið sér og hvísla í eyrað á honum "Ekki sofna Krummi minn". Að sjálfsögðu var það ekkert mál og ég hvíslaði þessi orð í eyra hans í 30 klukkustundir samfleytt. Geri aðrir betur.

P.s. Johnny Carl vill koma því til skila að Saumaklúbburinn Engey úr Grafarvogi hefur hætt við ferð sína til Balí því Bjarney gleymdi gleraugunum sínum heima hjá tengdasyni sínum.
Í morgun opnaði póstlisti síðunnar opinberlega en eins og sést á myndinni hér til hægri þá var þessi myndarlegi maður fyrstur til að skrá sig. Hann heitir Bárður og er á lausu ef einhver hefur áhuga en hann er fyrir bæði kynin. Hann kom inn á skrifsstofu til mín fyrir misskilning því hann var að leita að Félagsheimili Nýbúa en það er á þriðju hæð. Ég bauð honum upp á kaffisopa og vínarbrauð og spurði hvort hann vildi ekki fá póst frá mér einstaka sinnum sem mundi innihalda upplýsingar hvað sé að gerast á heimasíðunni og tilkynningar frá vini mínum Johnny Carl á Keflavíkurflugvelli. Bárður þáði það en ég held að ég eigi ekki eftir að heyra meira frá honum því honum fannst kaffið mitt vera of soðið.
Þeir sem ekki vita hver Johnny Carl er, þá er hann nýjasti starfsmaður síðunnar en lesendur síðunnar fá að vita hverjir eru á leiðinni til Balí í sumar.
Góðar stundir.

mánudagur, maí 03, 2004

Stjarnan Penelope Cruz er að ganga í gegnum erfiðan skilnað þessa dagana eins og flestir vita. Hún hringdi í fyrirtæki mitt Reim-escort á laugardagskvöldið og bað um mig persónulega til að fylgja sér í teiti sem sjálf Tinna Alavis hélt í vöruskemmu við Smiðjuveg. Þeir sem þekkja ekki Tinnu Alavis þá er hún ekki strákastelpa lengur og var m.a. ein af 10 efstu stúlkunum sem kepptu í Queen Of The World fegurðarsamkeppninni í München (geri aðrir betur!). Það var svaka fjör í teitinu og sjálfur Skímó-gæinn Addi Fannar hélt ræðu um skaðsemi ljósbekkja á rauðhært fólk. Ég sá voðalítið af Penelope um kvöldið en ég fékk umrædda upphæð borgaða seinna um kvöldið .
Um helgina fór ég í gegnum skjalasafnið og var að leita af skráningum í gestabókina mína og ég tók eftir því að ekki hafa margir skráð komu sína á vefsvæði mitt undanfarnar vikur.
Ég hvet alla lesendur mína að skrá heimsóknir sínar í gestabókina. Það er nóg pláss í skjalaskápnum.
P.s. Athugasemdir um holdafar mitt eru afþakkaðar!

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Í þessum töluðum orðum var ég að koma úr Bændahöllinni þar sem mér var afhent Ísland við hátíðlega athöfn.
Guðni nokkur Ágústsson, betur þekktur sem Landbúnaðarráðherra, afhenti mér Ísland fyrir vel unnin störf fyrir sauðfjárbændur í landinu en ég m.a. hjálpaði Brjánsa bónda á bænum Hliðklappir að hætta að ganga í ullarbrókum. Guðni sagði m.a. í ræðu sinni "Þegar rolla er í vanda, þá lætur Reimarinn ekki á sér standa". Eftir ræðuhöld gæddum við okkur á flatkökum með hangikjöti og rúllupylsu og sterku kaffi. Góðar stundir.

mánudagur, apríl 26, 2004

Hlaup ársins

Um helgina tók ég þátt í maraþonhlaupi sem Lionsklúbburinn Kaldá stóð fyrir. Ég tók vin minn Ásbjörn Ninsunza með mér en hann á ættir sínar að rekja til Víetnam og Bandaríkjanna Norður-Ameríku en móðir hans var vændiskona og hórumamma í Víetnamstríðinu (ef einhver hefur áhuga á því hverra manna hann er).

Ásbjörn tjáði mér á miðvikudaginn að hann ætti draum um að hlaupa með mér í Maraþonhlaupi. Ég tók hann á orðinu og kallaði í vini mína í Lionshreyfingunni og við ákváðum að hlaupa í gegnum Indjánagil og upp að Reiðhöllinni. Ásbjörn lenti í örðu sæti og ég var í sjötta sæti en u.þ.b. 8 manns tóku þátt. Í fyrsta sæti var boðflenna úr Veiðiklúbb Ingólfs, það rétt sést í hann á myndinni. Góðar stundir.
P.s. Ef einhver hefur athugasemdir varðandi stuttbuxurnar mínar, þá eru þær ekki velkomnar.

mánudagur, mars 15, 2004

Ég ákvað að deila með ykkur mynd af mér og nýja frábæra bílnum mínum.
Hann Svali, ofurtöffari á Fm, mælti með þessu magnaða leiktæki, en eins og allir vita þá sér hann um dótahornið í Íslandi í dag.
Kerran er af gerðinni Mazda XLOS 20045 SL og er eins og þrumuköttur á vængnum. Bíllinn kostaði þrjárkommasjö en þá upphæð fékk ég fyrir að hjálpa Lúðrasveit Mosfellsbæjar að koma undir fótunum aftur eftir að Baldur Rafn hafði stolið öllu steini léttara til að fjármagna sína Bingó-áráttu.

Kæra Dagbók

Í morgun hitti ég vin allra barna, hann Svamp Sveinsson.
Við spjölluðum um daginn og veginn og hann sagði mér annars frá því að snigillinn hans Garri væri farinn á vit ævintýrana og það væri mjög einmannalegt í djúpinu en eins og allir vita þá býr Svampur Sveinsson í Ananas í Djúpinu.
Við töluðum um ruglfiskinn skemmtilega sem hefur gaman af biluðu bulli en síðan þegar líða tók á samtal okkar vorum við orðnir eins og gamlir ostar í bók sem amma þín las.
Góðar stundir.

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Það eru ekki margir sem muna eftir sjónvarpsþættinum Chip's en Erik Estrada kom hingað til lands árið 1982 til að gera sjónvarpsleikrit byggt á þessum vinsælu sjónvarpsþáttum. Sjónvarpsleikritið fékk nafnið "Góð lögga, slæm lögga" og var tekið upp á Raufarhöfn. Ég var svo lánsamur að fá hlutverk slæmu löggunnar. Því miður vildi sjónvarpið ekki sýna leikritið því Rúv hafði ekki efni á því að texta leikið efni fyrir sjónvarp. Ástæðan fyrir því að ég minnist á þetta sögufræga sjónvarpsleikrit er sú að nú á að fara gefa út leikritið á DVD sniði. Mynddiskurinn mun fást í Pennanum Hallarmúla.

Kæra Dagbók

Hér á myndinni til vinstri er ég ásamt þeim Han Juju og Tin Tutu en þeir eru aðaltöffararnir í Nýbúadeild Eimskipafélagsins. Þeir sem ekki ekki vita hvað Nýbúadeild Eimskipafélagsins gerir þá sér hún um að allir laumufarþegar sem koma til landsins fái konunglega móttöku þegar þeir stíga frá borði. Hér erum við í matarboði sem haldið var til heiðurs konu sem kom hingað til lands með skipinu Brúarfoss sem fer Suðurleið Eimskipafélagsins. Hún er í græna jakkanum bakvið okkur. Við Han og Tin erum að bleyta kverkarnar með Canada Dry á myndinni en Nýbúadeildin fann 6 bretti af þessum bragðgóða drykk fyrir nokkrum árum við venjulega í skoðun í Dettifoss. Góðar stundir.

föstudagur, febrúar 13, 2004

Kæra Dagbók

Jú, mikið rétt, eins og flestir vita þá fór ég í bað með indversku prinsessunni Leoncie og eiginmanni hennar Viktor nú á dögunum. Ég er ekki sami maður eftir þetta ævintýri en við Leoncie og Viktor höfum þekkst síðan að ég reddaði henni Jóni Pál Sigmarssyni, sterkasta manni heims, til að prýða framhlið hennar fyrstu plötu, My Icelandic Man.
Hér á myndinni erum við Jón í góðu geimi á keppninni 'Mr. BODY OIL' í Skotlandi árið 1984.

Kæra Dagbók

Sæll lesandi kær.
Á næstu dögum mun þessi dagbókarheimasíða breytast lítil-lega vegna breytinga í lífi mínu. Þetta gæti komið sumum á óvart en samstarfsaðili minn er flúinn til Svíþjóðar. Hún Magga eða Magga Steri eins og flestir þekkja hana er flúinn og ég veit ekki alveg hvað ég á að gera þar sem hún sá um ýta á F5 á heimasíðunni. Hún hefur líklega fengið betra starf.
Hér með auglýsi ég eftir nýjum F5 starfsmanni!
Á myndinni til vinstri er ég við gömlu starfsaðstöðu Möggu.

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Um helgina fór ég með vinum mínum í gönguklúbbnum “Bakvið grímuna” upp á Esju. Við löbbuðum alla leið upp á topp en þá varð ég illa svikinn af félögum mínum því þeir vildu tjalda yfir nóttina. Ég kvaðst ekki hafa tíma til að gista því ég væri að fara æfa dansatriði með Yasmine Olsen daginn eftir fyrir FM957 verðlaunin. Þeir skildu það alveg og kvöddu mig með myndatöku. Myndin hér til vinstri sýnir þetta magnaða augnablik.... eða eins og segir í auglýsingunni "Deildu augnablikunum, deildu lífinu".
Eitt af því sem ég geri reglulega er að fara á Dvalarheimili aldraðra sjómanna, eða DAS eins og flestir þekkja það, og afhendi gjafir handa þeim sem hafa sent ósk í óskasjóðinn minn “Óskaðu þér”. Gunnar Hallgrímsson óskaði eftir því að eignast eignast flotholt en hann fær martraðir eftir að hafa séð kvikmyndina Titanic. Að sjálfsögðu var það lítið mál og ég afhendi honum flotholtið við mikin fögnuð hjúkrunarfólksins á DAS. Ef þú vilt að óskin þín rætist eða einhverra annara í kringum þig, hafðu þá samband ...
asgeirsig@mamma.is
Ég var staddur í setustofu skákfélagsins Hrókur þegar Hákon Snorrason, einn af þrem stofnfélugunum, kom til mín og sagði mér hversu nálægt hann hafði verið að vinna Hrafn Jökulson í hraðskák fyrr um daginn. Hann lýsti skákinni ýtarlega og sagði mér m.a. að hann hygðist stofna nýtt félag þar sem hraðskákir yrðu aðeins spilaðar ef menn væru að flýta sér. Myndin hér til vinstri sýnir hversu Hákon var nálægt því að vinna Hrafn.