Um helgina tók ég þátt í maraþonhlaupi sem Lionsklúbburinn Kaldá stóð fyrir. Ég tók vin minn Ásbjörn Ninsunza með mér en hann á ættir sínar að rekja til Víetnam og Bandaríkjanna Norður-Ameríku en móðir hans var vændiskona og hórumamma í Víetnamstríðinu (ef einhver hefur áhuga á því hverra manna hann er). Ásbjörn tjáði mér á miðvikudaginn að hann ætti draum um að hlaupa með mér í Maraþonhlaupi. Ég tók hann á orðinu og kallaði í vini mína í Lionshreyfingunni og við ákváðum að hlaupa í gegnum Indjánagil og upp að Reiðhöllinni. Ásbjörn lenti í örðu sæti og ég var í sjötta sæti en u.þ.b. 8 manns tóku þátt. Í fyrsta sæti var boðflenna úr Veiðiklúbb Ingólfs, það rétt sést í hann á myndinni. Góðar stundir.
P.s. Ef einhver hefur athugasemdir varðandi stuttbuxurnar mínar, þá eru þær ekki velkomnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli