Um helgina fór ég með vinum mínum í gönguklúbbnum “Bakvið grímuna” upp á Esju. Við löbbuðum alla leið upp á topp en þá varð ég illa svikinn af félögum mínum því þeir vildu tjalda yfir nóttina. Ég kvaðst ekki hafa tíma til að gista því ég væri að fara æfa dansatriði með Yasmine Olsen daginn eftir fyrir FM957 verðlaunin. Þeir skildu það alveg og kvöddu mig með myndatöku. Myndin hér til vinstri sýnir þetta magnaða augnablik.... eða eins og segir í auglýsingunni "Deildu augnablikunum, deildu lífinu".
fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Eitt af því sem ég geri reglulega er að fara á Dvalarheimili aldraðra sjómanna, eða DAS eins og flestir þekkja það, og afhendi gjafir handa þeim sem hafa sent ósk í óskasjóðinn minn “Óskaðu þér”. Gunnar Hallgrímsson óskaði eftir því að eignast eignast flotholt en hann fær martraðir eftir að hafa séð kvikmyndina Titanic. Að sjálfsögðu var það lítið mál og ég afhendi honum flotholtið við mikin fögnuð hjúkrunarfólksins á DAS. Ef þú vilt að óskin þín rætist eða einhverra annara í kringum þig, hafðu þá samband ...asgeirsig@mamma.is
Ég var staddur í setustofu skákfélagsins Hrókur þegar Hákon Snorrason, einn af þrem stofnfélugunum, kom til mín og sagði mér hversu nálægt hann hafði verið að vinna Hrafn Jökulson í hraðskák fyrr um daginn. Hann lýsti skákinni ýtarlega og sagði mér m.a. að hann hygðist stofna nýtt félag þar sem hraðskákir yrðu aðeins spilaðar ef menn væru að flýta sér. Myndin hér til vinstri sýnir hversu Hákon var nálægt því að vinna Hrafn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)