Í þessum töluðum orðum var verið að afhenda mér þakkargerðarskjöld frá skákfélaginu Hrókurinn en eins og allir vita þá hélt Hrafni Jökulsyni vakandi í Vetrargarðinum nú um helgina þar sem tefldi nokkrar skákir í 30 klukkutíma.Margir spyrja sig líklega afhverju þarf Hrafn á manni að halda til að halda sér vakandi? Það er einfalt svar við því. Hann Hrafn (eða Krummi Biskup eins og við félagarnir í Hróknum köllum hann) er nýhættur að drekka kaffi því bað hann mig um að sitja við hlið sér og hvísla í eyrað á honum "Ekki sofna Krummi minn". Að sjálfsögðu var það ekkert mál og ég hvíslaði þessi orð í eyra hans í 30 klukkustundir samfleytt. Geri aðrir betur.
P.s. Johnny Carl vill koma því til skila að Saumaklúbburinn Engey úr Grafarvogi hefur hætt við ferð sína til Balí því Bjarney gleymdi gleraugunum sínum heima hjá tengdasyni sínum.
