Á sunnudaginn fyrir viku var ég beðinn um að mæta í Grafarvoginn, nánar tiltekið í Spöngina Grafarvogi, af bæjarfulltrúa í Reykjavík. Ég kvaðst mæta án þess að spyrja nokkurra spurninga. Ég var mættur í Spöngina um kaffileytið og þá var mér tilynnt að ég mundi fá lykilinn af Grafarvogshverfi fyrir vel unnin störf í hverfisgæslunni. Ég varð nú svo aldeilis hissa, þar sem ég hef nú ekki unnið hingað til fyrir hverfisgæsluna.Þá sagði bæjarfulltrúinn mér að ég hafði sagt unglingi að hætta drekka fyrir utan einhverja sjoppu í hverfinu. Ég stóð alveg hreinlega á gati.
Þegar mér var afhentur lykilinn ætlaði allt um koll að keyra. Maður sem sagðist heita Hjálmar Einarsson kom upp á svið og sagði að þetta væri allt saman rugl, að það hefði verið hann sem talaði við táninginn. Hann kvaðst hafa beðið barnið um sopa á brugginu hans en allt kom fyrir ekki þetta var bara venjulegt Fanta. Hann reyndi að hrifsa lykilinn af mér en ég hélt fastataki í hann. Hjálmar fór heim til þín lyklalaus en menn segja mér að hann sé mikið fyrir sopan.
Johhny Carl vill koma því skila að Skittles nammið er uppselt og þeir í Leifsstöð eiga von á nýrri sendingu von bráðar.