föstudagur, september 30, 2005


Einn ljósmyndari hefur sótt um lausa starfið og hér á myndinni til vinstri erum við á góðri stundu í myndveri hans (Myndavélin var sett á Tímer). Hann heitir Vilhjálmur Þórarinsson og er ljósmyndari að mennt. Enn því miður þurfti ég að reka hann vegna þess að hann laug á umsókninni sinni. Hann fermdist aldrei og hann hafði ekki hugmynd um að KFUMogK væru með aðsetur í Neðra-Breiðholti. Einnig er hann hávaxinn.

Á góðri stundu í Búkarest

Eitthvað af vinum og kunningjum hafa verið að kvarta yfir því að ég er ekki nógu duglegur að setja inn dagbókarfærslur á heimasíðuna. Þannig er nú mál með vexti að minn kæri ljósmyndari, Hannes Már Guðjónsson, er týndur. Við vorum á ferðalagi um landið rétt eftir verslunnarmannahelgi og stoppuðum stutt í Landmannalaugum og böðuðum okkur í laugunum þar. Ég fór upp úr á undan Hannesi og þvoði mér í sturtu Lions klúbbsins á Landmannalaugum og þegar ég kom til baka var Hannes horfinn og hann tók allar myndirnar með sér.
Einhver sendi mér þessa mynd af Hannesi ásamt orðsendingunni "Á góðri stundu í Búkarest". Ég auglýsi hér með eftir nýjum ljósmyndara til að slást í för með mér á vit ævintýranna í Kópavogi og víðar. Skilyrði til að sækja um er að umsækjandi verður að vera fermdur. Allar umsóknir sem berast verða geymdar í 6 daga.

föstudagur, febrúar 18, 2005

Stokkhólmur

Um seinustu helgi var ég staddur í höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, þar sem ég lét gamminn geisa með félögum mínum í Golfklúbbi Reykjavíkur en þar var þorrablót klúbbsins haldið.
Á laugardagskvöldinu var skellt sér á frumsýningu á Abba sýningunni Mamma Mia en sú sýning hefur verið sýnd út um allan heim nema í heimalandi Abba flokksins. Frábær sýning, allir leikarnir voru til fyrirmyndar. Einnig vorum við svo heppinn að hitta alla fjóra meðlimi Abba en þau höfðu ekki séð hvort annað né mig í 12 ár en eins allir vita þá var ég í tímabundinni sambúð með Agnethu Faltskög eftir að hún hætti með Benny á sínum tíma.
Á sunnudeginum var svo haldið á golfvöllinn í Stokkhólmi. Við lékum 9 holur og fengum okkur svo hressingu í golfskálanum. Þá gerðist dálítið merkilegt. Sjálfur Tom Selleck var þar staddur á stuttbuxunum með gömlu félögunum sínum úr þáttunum Magnum P.I. Við spjölluðum saman í smástund um himin og geima og kvöddumst síðan. Myndin hér til vinstri var tekin við það tækifæri.

þriðjudagur, janúar 11, 2005


Eins og allir vita var mikil og stór sjávarútvegssýning í Laugardalnum á milli jóla og nýárs. Sjálfur Árni M. Mathiesen, Sjávarútvegsráðherra, bauð mér að koma og taka þátt í sýningunni. Ég spurði hann hvað maður eins og ég gæti gert á svona stórri sýningu og hann sagði mér að hafa samband við Gunnar Hjaltalín skipstjóra frá Vestmanneyjum og hann mundi finna eitthvað handa mér. Sem og ég gerði.
Þegar ég var mættur á svæðið hitti ég Gunnar yfir kaffibolla og við ræddum saman um veðrið. Það var kalt þennan dag. Eftir stutt spjall fékk loksins verkefnið mitt, það var að vera sýningarmódel við gamlan skrúfbolta úr gömlu Akraborginni. Myndin hér til vinstri var tekinn seinna um daginn.