Um seinustu helgi var ég staddur í höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, þar sem ég lét gamminn geisa með félögum mínum í Golfklúbbi Reykjavíkur en þar var þorrablót klúbbsins haldið.Á laugardagskvöldinu var skellt sér á frumsýningu á Abba sýningunni Mamma Mia en sú sýning hefur verið sýnd út um allan heim nema í heimalandi Abba flokksins. Frábær sýning, allir leikarnir voru til fyrirmyndar. Einnig vorum við svo heppinn að hitta alla fjóra meðlimi Abba en þau höfðu ekki séð hvort annað né mig í 12 ár en eins allir vita þá var ég í tímabundinni sambúð með Agnethu Faltskög eftir að hún hætti með Benny á sínum tíma.
Á sunnudeginum var svo haldið á golfvöllinn í Stokkhólmi. Við lékum 9 holur og fengum okkur svo hressingu í golfskálanum. Þá gerðist dálítið merkilegt. Sjálfur Tom Selleck var þar staddur á stuttbuxunum með gömlu félögunum sínum úr þáttunum Magnum P.I. Við spjölluðum saman í smástund um himin og geima og kvöddumst síðan. Myndin hér til vinstri var tekin við það tækifæri.