fimmtudagur, maí 10, 2007

Nikkan misnotuð

Ég er nýkomin af bráðskemmtilegum mótmælum sem fóru fram í Kjörgarði nú fyrir stundu.

Við kunningjarnir úr áhugamannafélagi Harmonikkunnar á Íslandi komum saman á Laugavegi við Kjörgarð og mótmæltum misnotkun á hljóðfærinu. Í blíðskaparveðrinu voru komnir nokkrir sígunar að spila létta sjómannaslagara í bland við pólka fyrir gesti og gangandi. Allt í lagi með það nema að enginn kannaðist við lögin, þar að auki voru þau illa spiluð og einnig kom fyrir að lag var ekki klárað því sumir þeirra áttu erfitt með halda takti með bassatökkunum.

Við félagarnir ákváðum því að mótmæla þessu og kölluðum á spilarana "Niður með Nikkuna". En það gekk ekki eftir þar til að lögreglan kom inn á milli okkar og stöðvaði hamaganginn. Varðstjórinn sagði mér að þetta væru þrælar frá Rúmeníu. Já öll erum við þrælar Nikkunnar.

Engin ummæli: