laugardagur, desember 13, 2003

Þeir á Landspítala Hringsins báðu mig um að staldra við næst þegar ég ætti leið hjá og sjá dálítið merkilegt. Þannig er mál með vexti að maður hér í bæ sem er af erlendu bergi brotin er með einkennilegan kvila. Hann getur tekið bein úr sínum hægri fótlegg. Eins og sést á myndinni held ég á beininu og Alfreð Alfreðsson læknir heldur á ökuskírteininu hans. Við höfum ákveðið að halda beininu og ökskírteininu yfir nótt til frekari rannsókna. Erlendi maðurinn fékk að fara heim.
Hér er ég ásamt rannsóknarhópnum Wella en við höfum verið að rannsaka hönd á nýbúanum Jo Hansol sem býr í Yrsufelli 72 111 Rvk. Hún er meðmjög einkennilegan glóa á hægri handlegg sem lýsir sér þannig að alltaf þegar hún lætur hendur standa fram úr ermum þá glóir hann og allir sem eru í kringum hana langar spila við hana handbolta. Við í Wella hópnum höfum komist að þeirri niðurstöðu að hún leggur alltof mikla þýðingu í söngtexta Ómars Ragnarssonar en hún lærði einmitt íslensku með því að hlusta á söngtexta og tónsmíðar Ómars.
Ath.Gísli sem er bakvið Jo Hansol hefur ákveðið á draga sig út úr hópnum eftir að hafa verið uppvís að því að biðja Jo Hansol um fasteignaverð í Fellunum.

föstudagur, desember 12, 2003

Þetta er Helga Ásmundsdóttir. Hún er fyrrum aðalgjaldkeri nemendafélagsins Menntaskólans við Hamrahlíð. Hún hefur ekki unnið við neitt í 19 ár og er að leita sér að vinnu. Hér á myndinni til vinstri er ég ásamt henni að fyrir utan Slippfélagið en hún bað mig um að hjálpa sér að leita að vinnu. Hún vill aðeins vinna störf sem tengjast sjómennsku því að hún skemmti sér best sem aðalgjaldkeri nemendafélagsins Menntaskólans við Hamrahlíð þegar hún þurfti að rukka sjómann um 4562 kr. eftir að hann hafði skemmt hurðarhún á klósetti nemendafélagsins en hann fékk að nota salernið þar sem hann var í spreng eftir að hafa beðið eftir barnsmóðir sinni sem var í íslenskuprófi. Ef einhver þarna úti er með starf tengt sjómennsku handa henni þá er hún til í allt nema að elda lambalæri.

miðvikudagur, október 08, 2003

Ég fór eldsenmma á fætur í morgun og lagði leið mína í Þjóðarbókhlöðuna. Þar fór ég gegnum nokkrar skyggnur til að leita af viðtali við Albert Guðmundsson þar sem segist vera andvígur því börn fái púðursykur út á súrmjólkina sína. ENNNN.. allt í einu bankaði stúlka í öxlina á mér. Hún sagðist heita María Marteins og spurði hvort ég væri á lausu. Ég sagði svo vera og hún spurði mig hvort ég vildi byrja með henni. Ég sagði að ég væri ekki tilbúinn í ástarsamband en bætti við að hún mætti hringja í mig hvenær sem er. Hún bað um símanúmerið mitt og ég sagðist ekki muna það. Þannig að hún dró fram nýjustu símaskrána og bað mig um benda sér á númerið og ég gerði það. Einnig benti ég henni á númerið hjá Böðvars Bakarí og dekkjaverkstæði pabba hennar.
Myndin hér til vinstri var tekin við það tæifæri.

þriðjudagur, október 07, 2003

Hér er myndinni til vinstri er ég á ásamt félögum mínum í Manchster United áhugamannaklúbbi sem heitir 'RimaCentral'. Ég vildi bara sýna ykkur þessa mynd kæru lesendur því að hún er sönnunargagn.
Þannig er mál með vexti að við félagarnir ákváðum að hafa hendurnar í vösum til að mótmæla flutningi David Beckhams til Real Madrid en Haffi sem er til vinstri aftast var bara eina hönd í vasanum. Haffi segir að hann hafi misst jafnvægið þegar myndin var tekinn og hafi þurft að styðja sig við hilluna en við erum ekki að trúa því, vegna þess að eitt sinn var Haffi harður stuðnigsmaður Derby County og var m.a. einn af stofnendum aðdáendaklúbbsins Derbý Debbý . Hann hefur verið rekinn tímabundið úr félaginu á meðan rannsókn stendur. (sjáið bara glottið á honum).

sunnudagur, október 05, 2003

Ég held að ég hafi aldrei verið eins heppinn á ævinni. Ég fékk að hjóla með tvo af bestu matreiðslumönnum Reykjavíkur. Þetta eru þeir Stephan og Villi. Ég rakst á þá í Smáralind og þeir báðu mig um að hjóla með sig um Kópavog og sýna þeim mannlífið í bænum og þvottastöðina Löður. Að sjálfsögðu gerði ég það. Hér á myndinni til vinstri sjást félagarnir virða fyrir sér stórkostlega mannlífið í Kópavogi.

föstudagur, október 03, 2003

Úffff, það er búið að vera mikið að gera hjá mér. Ég hitti einstæða móðir í Krónunni í Garðabæ sem heitir Álfdís. Hún sagði mér að hún ætti strák sem héti Alfreð og hann ætti erfitt uppdráttar í skólanum, þar sem hann er mikill áhugamaður skákíþróttarinnar en enginn vill tefla við hann. Hún spurði hvort ég gæti hjálpað eitthvað og ég hugsaði smá og beit í epli. Ég kláraði eplið, fór með henni heim og Alfreð tók á móti mér. Ég tók strax eftir því að það var ekki brauðrist á heimilinu en það er oft orsök vandamála barna. Ég settist í sófan, sagði Alfreð að setjast í kjöltu og Álfdísi að tilla sér bakvið mig. Ég kitlaði Alferð og hann hefur misst allan áhuga skák og hann er nú orðinn venjulegur.

miðvikudagur, september 24, 2003

Nú rétt í þessu var ég að koma frá Hvanneyri en ég var fenginn til að koma til að vera sérstakur ráðgjafi við gerð símaskráar bæjarfélagsins.
Þeir Eddi og Jói eru smiðirnir að skránni en þeir vildu fá mitt álit. Að sjálfsögðu tók ég næstu rútu til Hvanneyrar til gefa þeim mitt álit á skránni en eins og allir vita þá er símaskrá Hvanneyrar ein skemmtilegasta bók sem kemur út á hverju ári. Ég benti Jóa og Edda á að þeir gætu leyft sér þann unað að hafa hana smærri í sniðum þetta árið en því miður er það ekki hægt því skurðarhnífur sem pantaður var frá Hannover árið 1973 er enn fastur í tollinum þar sem þetta telst víst vera vopn. Ég fór ekki ráðalaus og tók svissneksa vasahnífinn minn og skar þetta fyrir þá nema eina sem ég ætla að veggfóðra kjallaraherbergið mitt með.
Í morgun var ég dregin úr morgunkaffi á Litlu kaffistofunni og fenginn til að hlaupa í skarðið fyrir Jóhannes í Bónus en hann átti að vera dómari á alþjóðlegri hundasýningu sem haldin var fyrir framan Debenhams í Smáralind.
Ég er nú lítið gefin fyrir Hunda og eigendur þeirra en Guðný Hálfdánardóttir kom með fallegan hund með sér. Hundurinn hennar heitir Tótó og er uppstoppaður en hann lést fyrir þónokkru síðan. Ég gaf henni fyrsta sætið og Guðný hélt því þrátt fyrir mótmæli starfsfólks Debenhams sem eru aðstandendur keppninnar. Allt fór vel að lokum og ég fékk pönnukökur að launum fyrir erfiði dagsins.

þriðjudagur, september 23, 2003

Hahahahaha. Nei nei nei. Ég hef hvorki verið veikur né á ferðalagi með frægum vin en þó vil ég geta þess að ég er að fara til Blönduós með Þorsteini Joð um næstu helgi til að hjálpa honum að koma á fót spurningakeppni í félagsheimilinu þar. Meira um það síðar.
Ástæðan fyrir því að ég hef ekki skrifað til ykkar lesendur góðir er sú að ég var fengin til að vera umsjónarmaður rannsóknarverkefnis sem á að ljóstra því upp afhverju söngleikir eins og Grease t.d. eru svona vinsælir hér á Íslandi. Ég hef verið fastur í þessu verkefni dag og nótt. Það er finnska menntamálaráðuneytið sem vil endilega komast að þessu. Ég komst að niðurstöðu í gær og niðurstaðan er sú að Finnland verður að opna bæði IKEA verslun og Kiss búð (eins og í kringlunni) til að söngleikir nýti einhverra hylli þar í landi.

föstudagur, ágúst 29, 2003

Í morgun var ég staddur í Bandaríska sendiráðinu. Ástæðan fyrir minni heimsókn minni þangað var sú að ég prjónaði peysu á sendiherra Ameríkana, hana Carol Hamilton. Carol var hæst ánægð með peysuna en við yrðum miklir vinir eftir að hún hafði frétt af því að það var ég sem var fyrirliði íslenska Briddsliðsins en eins og allir lesendur mínir vita þá náði íslenska liðið að sigra Rússa á heimsmeistaramótinu í Bridds árið 1994.
Það er liðin langur tími frá því að ég lagði leið mína í Ameríska sendiráðið en ég skaust þangað í morgun og gaf henni þessa fallegu peysu eins og sést á myndinni. (Því miður eru kanarnir ekki komnir svo langt að geta keypt litafilmu).

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Eins og allir að vita þá er ég á forsíðu September útgáfu táningatímaritsins ABC.
Í blaðinu segi ég frá ruglinu sem ég lenti í við Íþróttadeild Víkings, hvernig ég sneri aftur á internetið, skákina, týna borðtennis spaðan frá Stiga, Jójó sigrana og margt fleira. Einnig tala ég opinskátt um það hvernig er að lifa í skugga Gísla Marteins en eins og allir vita þá sigraði hann í mig Gettu betur spilinu nú fyrir skömmu.
Tímaritið fæst aðeins í Hirnunni á Borgarnesi en það er eini staðurinn sem vill selja blaðið en eins og allir muna þá vildi enginn selja blaðið eftir að hljómsveitin Europe hætti störfum.

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Nú í dag byrjuðu börn og táningar að flykkjast í skólana.
Ég stofnaði fyrirtækið Ferðadjús í morgun og náði samningum við Svala um að færa grunnskólabörnum Svala þegar þau vilja. Eins og sést á myndinni hér til vinstri hannaði ég tæki sem framleiðir ískaldan djús. Nú þurfa börnin ekki lengur að bíða eftir frímínútum til að fá Svala heldur getað þau bípað í mig hvenær sem er. Símboðanúmerið mitt er 907-DJÚS.
Ég hef heyrt að börn kvarta undan eymslum í baki vegna bakpokana þeirra en ég dey ekki ráðalaus og hef ákveðið að hanna bakpoka sem börnin geta verið framan á sér. Það er náttúrulega miklu betra, þá þurfa þau aldrei að taka töskuna af sér.

þriðjudagur, ágúst 19, 2003

"Á skíðum skemmti ég mér, tralalaltalralala." Jú mikið rétt eins og segir í laginu þá skemmti ég mér á skíðum. Ég fór með tveimur vinkonum mínum af Grund í Skíðaferð í brekkuna upp í Breiðholti og við erum búinn renna okkur í allan dag. Þær Guðný og Sigríður hafa ekki farið á skíði í 62 ár en þær eru fyrrum íslandsmeistarar og heimsmethafar á skíðum. Þær hringdu í mig í morgun og voru rosalega æstar að fá mig á skíði en sagði nú við þær að þær væru snargeggjaðar stelpur. Það er enginn snjór kominn, en viti menn það byrjaði að snjóa í sveitinni Breiðholt í nótt. Ég týndi stelpunum um mitt hádegi og ég hef ekki séð þær síðan. En ég sá sjúkrafluttningamenn bera svarta poka í bíl. Magnað!
Hér á myndinni er ég ásamt Guðnýju og Sigríði við sólarupprás í Breiðholtinu.

föstudagur, ágúst 15, 2003

Nú rétt í þessu var íslenska pílusambandið að færa mér stigatöflu að gjöf.
Pílusambandið ákvað færa mér þessa stigatöflu því ég er víst fyrsti maðurinn á Íslandi til að hitta öllum þrem pílunum í miðjuna á Dartspjaldinu með svertingja viðstaddann. Þetta hefur víst ekki gerst áður. Svarti maðurinn sem var viðstaddur þessa mögnuðu stund er enginn annar en körfuboltasnillingurinn og vinur minn Ívar Webster. Hér á myndinni til vinstri er Ívar að afhenda mér töfluna.
Allir í Dart!
Ég er búinn að vera á stanslausum æfingum alla vikuna fyrir menningarnótt en á laugardagskvöldið mun ég ásamt gjörningahópnum Klandur vera með gjörning á Hverfisgötu fyrir framan danska sendiráðið. Danski kónsúllinn gaf okkur leyfi til að vera fyrir framan sendiráðið en fyrir skemmstu lánaði ég honum í strætó þegar hann var fastur í Vogahverfinu.
Hér á myndinni til vinstri er ég og Þresti 3000 að æfa fyrir uppákomuna.

föstudagur, ágúst 08, 2003

Sumir lesendur síðunnar hafa verið að kvarta yfir því að það sé erfitt að skrá sig á póstlistann. Nú þegar hafa 5 manneskjur skráð sig. Þar á meðal hafa Hans og Dietmar frá Þýskalandi skráð sig og þeim fannst þetta ekkert erfitt. Það eina sem þarf að gera er að senda mér póst á asgeirsig@talnet.is og segja: "Mér ekki mig langar virkilega að komast á póstlistann og einnig vil ég þakka fyrir frábæra grein sem þú skrifaðir á heimasíðu aðdáendaklúbbs Ripp, Rapp og Rupp" og ýtið á send. Svo einfalt er það.
Þess má geta að ég bauðst til að kenna Hans og Dietmar á listdans-skauta vegna þess að þeir skráðu sig. Myndin hér til vinstri var tekin við það tækifæri.
Ágætu lesendur. Ég veit að ég hef ekki látið vita af mér í heila viku en þannig er mál með vexti að ég stóð fyrir alþjóðlegri danskeppni nú á dögunum og ég hef verið hundeltur af aðdáendum hljómsveitarinnar En Vouge en sá hópur mátti ekki taka þátt í keppninni vegna þess að þær skulda Hörpu Skúla félagsgjöld en hún á og rekur Dans-stúdíó Hörpu. Þannig að ég hef þurft að fela mig hér á Flateyri þar sem keppninn var haldinn í félagsheimili Flateyringa. Ég vona að þær fari að gefast upp því mig langar rosalega að komast út því það er bingó í félagsheimilinu í kvöld og aðalvinningur er kuldagalli sem ekki hefur sést áður á landinu.
Myndin hér til vinstri er af mér og Hörpu Skúla þegar keppnin var búinn en hún fékk þennan glæsilega fána fyrir framúrskarandi starf fyrir dansiðnaðinn á Flateyri.

föstudagur, ágúst 01, 2003

Ég fékk frábæra símhringingu í morgun. Það var enginn annar en sýslumaðurinn á Raufarhöfn, hann Hermann Ívarsson. Hann vildi athuga hvort ég hefði áhuga að vinna örlitla sjálfboðavinnu núna um verslunnarmannahelgina. Ég stökk á tækifærið og tók næstu rútu til Raufarhafnar. Það er heilmikil samkoma hér á Raufarhöfn um helgina en gildir meðlimir í Nýbúa samtökunum og fjölskyldur þeirra verða með fjölskylduskemmtun í Ásbyrgi. Ég mun vera við talstöðina alla helgina og ef einhver vill tala við mig þá er lögreglurásin á rás 12.
ATH. Vegna sumarleyfa 21. júlí til 12. ágúst verður opnunartími skrifstofu Raufarhafnarhrepps frá 9:00 - 14:00.

fimmtudagur, júlí 31, 2003

Jú, mikið rétt kæru lesendur ég hef fengið mér hund. Ég fann hann í Austurveri en hann átti leið þar framhjá í gær þegar ég var að leysa af í Manchester United og hesta-búðinni Ástund. Ég fór strax í morgun á ljósmyndastofuna "Ljósmynd af þér" í Grafarvogi og lét taka mynd af okkur saman. Hundurinn heitir Passion (eða Ástríða) og er algjör fjörbolti. En nóg um það. Eins og sést á myndinni er ég í nýjum skóm en þessa skó fann í sundi um daginn, lágu bara í hillu fyrir utan búningsklefan, og ég ákvað að taka þá. Þeir eru dálítið of stórir en það er allt í lagi því þeir eru svo töff. Þeir eiga eftir að koma að góðum notum helgina eftir verslunarmannahelgina en þá tek ég þátt í skylmingamóti en ég er virkur meðlimur í SKYR (Skylmingafélagi Reykjavíkur).

þriðjudagur, júlí 29, 2003

Við sólarupprás í morgun ákvað ég að skella mér í félagsheimili Nýbúa í Mjóddinni. Hún Guðný Saaiko var sú fyrsta á staðinn en hún þurfti að mæta snemma því að það þurfti að gera við sjónauka félagsins. Hún var búinn að laga hann þegar mér bar að garði og hún spurði hvort að vildi koma með henni í Nauthólsvíkina á línuskauta. Ég þáði gott boð en þurfti að sjálfsögðu að klára nýja heftið af Æskunni sem var að koma í hús. Frábær grein um Örn Arnarson sundkappa í nýja blaðinu en hann er eini maðurinn sem býr á bæjarmörkum Hafnarfjarðar og Grafavogs sem náð hefur árangri í sundi. Magnað.
En ég og Guðný fórum í Nauthólsvíkina og rúlluðum okkur á skautunum við mikin fögnuð viðstaddra. Einnig kenndi ég henni Guðnýju á hvernig íslensk umferðarljós virka.
Ég er alltaf að bæta við síðuna og stækka hana eftir að hafa fengið vænan styrk frá Menntamálaráðuneytinu. Jú, hann Bjössi vinur minn vildi hafa síðuna opna. Nú geta lesendur sagt skoðun sína á því sem gert var við syni Saddams eða því sem ég skrifa hér á síðuna.
Ég var að glugga í gestabókina mína og sá það eru ekki margir að senda mér heillaskeyti. Sussumsvei!
Sendið mér heillaskeyti.
Einnig fann ég á netinu gamalt myndaalbúm. Hægt er að nálgast það með því að smella á Gamlar myndir hér vinstra megin, neðst.

föstudagur, júlí 25, 2003

Ég er nýkominn af magnaðri sýningu sem var á Árbæjarsafni í dag.
Dvalarheimili aldraða sjómanna (eða DAS) stóð fyrir þessari sýningu. Ég var sjálfboðaliði þarna og fékk það frábæra hlutverk að vera sýningarmódel hjá reiðhjóli frá árinu 1877. Heill hellingur af eldri borgurum mættu á sýninguna og meðal þeirra sem gengu framhjá mér voru Flosi Ólafsson, rauðhærði gaurinn í Kastljósinu og Afi á Stöð 2. Einnig kastaði femínistinn Bríet á mig kveðju.
Ég kvet alla að fara á þessa sýningu, hún er vægast sagt frábær.
Hér myndin sem ég lofaði af mér og Magna Stuðara.

fimmtudagur, júlí 24, 2003

Það er búið að vera að nóg að gera hjá mér í dag. Ég er nýkomin af hljómsveitaræfingu en eins og allir vita þá er í kammersveitinni Skýjahöllin. Við vorum að ljúka við að spila á tónleikum í Fjarðarkaupum. Ég biðst afsökunnar ef það eru einhverjar stafsetningarvillur hér en ég er dálítið hífaður af eplasafa sem var í boði fyrir konsertinn.
Nú loksins er mynda-albúmið komið upp. Smellið hér eða smellið á tengilinn hér neðst til vinstri...
Á morgun sýni ég ykkur kæru lesendur mynd af mér og Magna Stuðara en margir hafa hringt og beðið um það.
Einn dyggur lesandi síðunnar bað mig um að setja mynd af mér í skátabúningnum inn á síðuna og hér er hún. Stúlkan sem er með mér á myndinni heitir Guðrún Hallgrímsdóttir en hún sannfærði mig á sínum tíma að ganga í Skátana. Einnig kenndi hún Pelastik og aðra hnúta sem komið hafa að góðum notum í gegnum tíðina. Myndin hér til vinstri var tekin á skátamótinu við Kleifarvatn sem fór fram á dögunum. Á myndina vantar Magna Stuðara úr hljómsveitinni Á móti sól.

miðvikudagur, júlí 23, 2003

Jú, mikið rétt kæru lesendur, ég hef gengið í heilagt hjónaband. Sú heppna heitir Consuela Matrians og er af spænskum ættum. Þetta gæti komið sumum á óvart en ég er jafn hissa og þið. Málið er það að ég ákvað að fá mér að borða í hádeginu á Tomma en þá er búið að breyta Tomma í strætóskýli. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, ég var viti mínu fjær, ég man mjög lítið eftir þessu. En allt einu kemur þessi einkennilega kona og nær að róa mig niður. Við giftumst núna rétt í þessu í kaffihléinu hennar en hún er starfsmaður hjá Securitas á Íslandi. Mér líður eins og þegar ég var plataður til að taka þátt í koddaslag í seinasta skátaferðalagi.

þriðjudagur, júlí 22, 2003

Jæja, þá er ég búinn að læra Karate. Þessi smávaxni karlmaður kenndi mér. Ég ákvað að nota hann til að kenna mér vegna þess að skólinn hans er í Skipholtinu og eins og allir lesendur mínir vita þá átti ég heima í Skipholtinu þegar það var frí áfylling á American Style.
Kennarinn heitir Bohai Si sem þýðir víst harður stóll. Ég hef lokið mínu námskeiði hjá honum og við höfum ákveðið að vera með karatesýningu í bílastæðahúsinu á Hverfisgötu kl. þrjú í dag. Hvet alla karate áhugamenn/konur að mæta.
Undur og stórmerki hafa gerst, ég er gengin til liðs við borðtennisdeild Víkings. Hér er ég ásamt Guðmundi E. "Maestro" Stephenseni. Við tókum nokkra sýningaleiki í gær á mótinu á Sauðárkróki, verst hvað það var lítil mæting, hefði viljað sjá fleiri kunnugleg andlit!
Í dag ætla ég að læra karate og leggja borðtennisspaðan á hilluna.

mánudagur, júlí 21, 2003

Ég þarf á ykkar hjálp að halda kæru lesendur. Þannig er mál með vexti að ég þarf nauðsynlega að komast í samband við manninn sem situr hjá mér á myndinni (þessi með gleraugun). Ég er búinn að birta þessa mynd undir dálknum Víkverji í dreifiriti Sjálfstæðisflokksins en fékk enginn svör. Þessi maður svarar nafninu "Jói hjólagjörð" en hann stal frá mér aukalykli af hengilás sem ég á. Það væri gott að fá lykilinn ef maður skyldi nú þurfa að læsa einhverju. Hitt fólkið á myndinni eru hálfsystkinni Jóa en mamma Jóa er dátamella.
Jæja, þá er ég mættur aftur. íþróttafélagið Víkingur náði ekki að taka síðuna frá mér þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Eins og sést á myndinni hér til vinstri þá er ég búinn að missa nokkur kíló og sentimetra en það er vegna þess að Víkingur hefur ekki látið mig í friði í 3 mánuði. Ég náði loks að losa mig við þá með því að gefa félaginu borðtennisborð svo að íslandsmeistarinn Guðmundur E. Stephensen gæti æft sig fyrir meistaramót sem hann heldur á Sauðárkróki í kvöld.

fimmtudagur, febrúar 27, 2003

Eins og myndin hér til vinstri sýnir er ég og starfsmaður minn, hann Gummi, að flytja vefinn. Vefurinn er væntanlegur á nýrri slóð innan skamms. Flutningar munu taka u.m.b. tvær vikur því benzínið á bílnum er að verða búið og því miður er budgetið okkar mjög lítið en við vonumst til að fá nokkrar krónur fyrir auglýsinguna sem er hér efst á síðunni til að kaupa meira benzín. Það er búið að banna okkur að vera á þessari slóð því íþróttafélagið Víkingur var búið að kaupa þessa slóð fyrir fimleikadeildina sína. En það þýðir ekkert að væla út af því.
Reimarinn mun koma sterkari og skemmtilegri á nýrri slóð. Gummi lofar því.

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

Hér er ég ásamt vini mínum Óskari á svif-flugnámskeiði. Óskar fékk einhverja pöddu inn í eyrað og hann fraus eins og sést á myndinni. Ég reyndi að róa hann með Súperdós af Diet-kók en það virkaði ekkert. Þannig að ég setti hann í kraftgallan minn, fór með litla bæn sem KFUM kendi mér og opnaði eina Súperdós af vanilukók. En ekkert gekk. Hann situr þarna enn í skúrnum með þennan svip en ég fer aðra hverja helgi til hans með Súperdós af diet-kók. Það róar taugarnar.
Vildi bara deila þessari mögnuðu mynd með ykkur. Þvílík dramatík þarna í gangi... Andstæðingur minn í þessari skák, Gaui, gaf leikinn eftir að ég færði fyrsta peðið mitt. Ég fékk ekki einu sinni tækifæri til að fara úr úlpunni...

þriðjudagur, febrúar 25, 2003

Skák og mát. Já það má með sanni segja.
Eins og flestir landsmenn ættu að hafa tekið eftir er mikið skák-æði búið að ganga yfir landið. Ótrúlegt en satt! Vúhú!
Að sjálfsögðu tek ég þátt í því eins og öllum öðrum mótum (tók seinast þátt í Kárahnjúka-mótinu).
Nú! Ég og félagar mínir úr Rimahverfinu tókum þá ákvörðun að stofna skáklið. Við tókum þátt í móti sem haldið var í Hvassaleitisskóla og rústuðum því. Myndin hér til vinstri er af mér, Vidda og Hannesi að taka við verðlaununum...en Viddi man hverja einustu skák sem hann hefur teflt og er alltaf að læra eitthvað nýtt.